Það hefur lengi verið draumur okkar að opna glæsilega BIOEFFECT verslun. Undanfarin ár höfum við lagt mikla áherslu á að efla ásýnd BIOEFFECT íslensku húðvaranna, bæði hér heima og erlendis. Mikilvægur hluti af þeirri vinnu felst í fallegri framsetningu á vörunum og bættri upplifun fyrir viðskiptavini. Í ár varð þessi draumur að veruleika þegar BIOEFFECT verslun opnaði á nýja verslunarsvæðinu við Hafnartorg.

Verslunin er staðsett í Hafnarstræti 19, í húsi sem var byggt árið 1925 og hýsti áður Rammagerðina. Húsið var nýlega gert upp í sinni upprunalegu mynd. Sá endi hússins sem hýsir BIOEFFECT verslunina er þríhyrndur og einkennist af glæsilegum bogadregnum verslunarglugga í austurátt – en margir vilja meina að hann minni óneitanlega á “straujárnið” fræga í New York.

Arkitektastofan Basalt hannaði verslunarrýmið í samstarfi við Sóley Þórisdóttur, yfirhönnuð BIOEFFECT og það má með sanni segja að útkoman endurspegli vörumerkið á áhrifaríkan hátt. Hönnuðirnir sóttu innblástur sinn í gróðurhús BIOEFFECT í Grindavík og notuðu til dæmis ylplast í innréttingar og lýsingu sem er sama efni og notað er í gróðurhús.
Annað einkenni verslunarinnar eru strekkt græn nælonsnæri sem eru tilvísun í byggplönturnar sem við ræktum og notum við framleiðslu á virka innihaldsefninu EGF. Þræðirnir eru eins langar týtur sem teygja sig úr axi byggplöntunnar og flæða um verslunina frá veggjum yfir í borð og hillur og skapa skemmtilega þrívídd í rýminu.

Í miðri versluninni er þríhyrningslaga eining þar sem hægt er að skoða og prófa BIOEFFECT vörurnar eða setjast niður, fá ráðgjöf og jafnvel húðmælingu. Plöntur hanga niður úr stóru þríhyrningslaga ljósi fyrir ofan eininguna, sem gefur rýminu karakter og býr til skemmtilegt andrúmsloft í miðju verslunarinnar.

Við erum afar stolt af því að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á glæsilega verslun þar sem sérfræðingar okkar eru alltaf til taks til að veita ráðgjöf og upplýsingar um notkun BIOEFFECT.
Hlökkum til að taka á móti þér í BIOEFFECT Hafnartorgi, við vonum að þér líki nýja verslunin.
Hlökkum til að taka á móti þér í BIOEFFECT Hafnartorgi, við vonum að þér líki nýja verslunin.
Opnunartími verslunarinnar er:
Mán - Lau 11:30 - 17:30